Cartoon Character of Cheese with dumbellsOstur inniheldur mikið af mettuðum fitusýrum og hefur lengi vel verið talinn geta valdið hjartasjúkdómum eins og aðrar fituríkar fæðutegundir. Danskir vísindamenn sem fóru yfir rannsóknir á þessu sviði ályktuðu sem svo að það væri ekkert samband á milli ostaneyslu og kransæðasjúkdóma. Þrettán mjög umfangsmiklar og vel framkvæmdar rannsóknir sýndu fram á að ostaneysla jók vissulega magn mettaðrar fitu í blóðrásinni en hún tengdist einnig stórum flutningsefnum sem eiga ekki auðvelt með að komast inn í æðaveggi. Ostur er prótín- og kalkríkur og inniheldur samtengdar línolfitusýrur (CLA) og bakteríur sem eru nauðsynlegar fyrir góða efnaskiptaheilsu.
(Critical Reviews in Food Science and Nutrition, vefútgáfa 30. janúar 2015)