Íslandsmót IFBB í vaxtarrækt 2015
Snæþór Ingi Jósepsson og Ólafur Þór Guðjónsson munu báðir keppa á Evrópumótinu á Spáni.

Nítján íslenskir keppendur stefna á Evrópumót IFBB í fitness og vaxtarrækt sem fer fram dagana 13-18 maí í Santa Susanna á Spáni. Evrópumótið er annað tveggja sterkustu mótana sem haldin eru í áhugamannadeild IFBB. Einungis heimsmeistaramótið jafnar Evrópumótið að styrkleika. Það hefur færst í vöxt undanfarin ár að Íslendingar keppi á þessum mótum en í ár fer fjölmennasti landsliðshópurinn frá upphafi á Evrópumótið og reyndar þó önnur mót séu líka meðtalin.

Til viðbótar við keppendur fara dómarar, ljósmyndarar og fylgifiskar keppenda með í för. Santa Susanna er orðin einskonar höfuðborg fitnessíþróttarinnar í Evrópu þar sem stærstu mótin hafa verið haldin þar undanfarin ár.

Íslensku keppendurnir eru eftirfarandi:

Christel Ýr Johansen Bikini -163 og junior
David Nyombo Vax -75
Dóra Sif Egilsdóttir Bikini -169
Eggert Rafn Einarsson Men´s Physique +178
Gísli Örn Reynisson Schramm Vax -100
Irma Ósk Jónsdóttir Junior Womens BF
Kristín Sveiney BF +163
Magnea Gunnarsdóttir Bikini, -172
Ólafur Þór Guðjónsson CBB -190 / CBB junior +175
Rannveig Kramer BF
Sandra Ásgrímsdóttir BF +163
Saulius Genutis Men´s Physique +178
Sigurkarl Aðalsteinsson Vax +50
Snæþór Ingi Jósepsson CBB +180
Valgeir Gauti Árnason Vax -100
Viktor Berg Junior Men´s Physique -175 og fullorðinna
Þorlákur Sigurbjörn Sigurjónsson CBB
Hrönn Sigurðardóttir Women´s physique
Rósa Björg Guðlaugsdóttir BF

Einnig mun Einar Guðmann og Georg Garðarsson alþjóðadómarar halda utan sem fulltrúar landsins og dæma á mótinu.