Búið er að birta nýjar myndir í nýju myndasafni sem er á myndir.fitness.is. Nýja myndasafnið er nútímalegra og þægilegra en hið gamla. Eins og verið hefur er keppendum velkomið að sækja og nota myndir af þeim sjálfum til einkanota og fyrir sína eigin samfélagsmiðla – ókeypis. Hægt er að sækja myndir í heppilegri skjáupplausn sem hentar vel fyrir vefsíður og síma.
Hægt að kaupa myndir í fullum gæðum
Núna er einnig hægt að kaupa myndir í fullum gæðum til einkanota sem henta til prentunar. Þeir sem hafa keppt í mörg ár vita að það er mikils virði að eiga hágæðaeintak af myndum sem varðveitast til framtíðar.
Það er ekki sjálfgefið að myndasafnið verði tiltækt um aldur og eilífð og því skorum við á keppendur að eiga myndir af sér í fullri upplausn sem hægt er að birta í fullum gæðum á skjám framtíðarinnar og prenta ef þess er óskað.






















