Það var fjölmenni í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem Íslandsmót Alþjóðasambands líkamsræktarmanna fór fram. Þau Gauti Már Rúnarsson og Kristín Kristjánsdóttir urðu Íslandsmeistarar í fitness og Íris Arna Geirsdóttir varð Íslandsmeistari í módelfitness.

IslMot2009Samanb2.png

Í fitnessflokki kvenna var keppt í tveimur hæðarflokkum, undir og yfir 163 sm. Kristín Kristjánsdóttir og Katrín Eva Auðunsdóttir sigruðu í sínum flokkum og kepptu að lokum um heildartitilinn ásamt Íslandsmeistara unglinga, Andreu Ösp Karlsdóttur. Fór svo að Kristín Kristjánsdóttir sigraði.

Mjög tvísýn keppni var í sumum flokkum og voru í sumum tilfellum einungis örfá stig sem skildu á milli keppenda.
Það var Magnús Bess Júlíusson sem sigraði í heildarkeppni á Íslandsmótinu í vaxtarrækt og Hrönn Sigurðardóttir varð Íslandsmeistari kvenna. Magnús sem keppti þarna í sínu besta formi átti í harðri keppni við Magnús Samúelsson sem kom sterkur til keppni, en varð að lokum að lúta fyrir meistaranum Magnúsi nafna sínum, sem sömuleiðis hampaði Íslandmeistaratitli í flokki 40 ára og eldri.

RosaKristinKristin2009.pngKristín Kristjánsdóttir varð ennfremur Íslandsmeistari í fitnessflokki kvenna 35 ára og eldri og þau Andrea Ösp Karlsdóttir og John Freyr Aikman urðu Íslandmeistarar í flokki unglinga.

Módelfitness kvenna
1. Íris Arna Geirsdóttir
2. Unnur Kristín Óladóttir
3. Fjóla Björk Gunnlaugsdóttir
4. Lísa María Markúsdóttir
5. Hallveig Karlsdóttir
6. María Ólafsdóttir
7-16. Una Eggertsdóttir
7-16. Mýa Ýrr Sveinrúnardóttir
7-16. Sonja Björk Jónsdóttir
7-16. Sara Vilhjálmsdóttir
7-16. Andrea Rún Carlsdóttir
7-16. Stefanía Björg Víkingsdóttir
7-16. Anna Sæunn Ólafsdóttir
7-16. Eva María Davíðsdóttir
7-16. Sif Sigþórsdóttir
7-16. Elín H. Guðnadóttir

Fitness kvenna -163 sm
1. Kristín Kristjánsdóttir
2. Solveig Silfá Sveinsdóttir
3. Kristín Jóhannsdóttir

Fitness kvenna +163 sm
1. Katrín Eva Auðunsdóttir
2. Eva Sveinsdóttir
3. Rósa Björg Guðlaugsdóttir
4-8. Andrea Ösp Karlsdóttir
4-8. Jórunn Jónsdóttir
4-8. Valdís Lilja Andrésdóttir
4-8. Jóhanna Margrét Halldórsdóttir
4-8. Sandra Ásgrímsdóttir

Fitness karla
1 Gauti Már Rúnarsson
2 Andri Hermannsson
3 Valgeir Gauti Árnason
4 Kristján Geir Jóhannesson
5 Hrólfur Jón Flosason
6 Óli Hjálmar Ólason
7 Þorvaldur Ægir Þorvaldsson
8 Jón Valur Einarsson, 111- 8

Fitness karla 40 ára +
1. Böðvar Þ Eggertsson
MaggiogKatrinEva.png
Vaxtarrækt karla -80 kg
1. Gauti Már Rúnarsson
2. Andri Hermannsson
3. Júlíus Þór Sigurjónsson

Vaxtarrækt karla -90 kg
1. Magnús Samúelsson
2. Svavar Smárason
3. Kristján Geir Jóhannesson
4. Hrólfur Jón Flosason

Vaxtarrækt karla -100
1 Magnús Bess Júlíusson
2 Sturla Bergsson

HronnSigVax2009.pngVaxtarrækt kvenna
1. Hrönn Sigurðardóttir

Vaxtarrækt karla 40 ára +
1. Magnús Bess Júlíusson
2. Svavar Smárason

Fitness kvenna unglingafl.
1. Andrea Ösp Karlsdóttir
2. Edda Dögg Ingibergsdóttir
3. Sólveig Hulda Árnadóttir

Fitness kvenna 35 ára +
1. Kristín Kristjánsdóttir
2. Rósa Björg Guðlaugsdóttir
3. Kristín Jóhannsdóttir
4. Laufey Hreiðarsdóttir
Islmot2009JohnFreyr.png
Fitness karla unglingafl.
1. John Freyr Aikman
2. Saulius Genutis
3. Bergur Már Flosason
4. Theodór Sigurðsson

Það er kannski óþarfi að taka það fram, en það eru að sjálfsögðu fjölmargar myndir í myndasafninu á fitness.is frá mótinu. Myndirnar tóku Gyða Henningsdóttir og Einar Guðmann.