Hafdís lengst til hægri.

Um helgina kepptu 12 íslendingar á Arnold Classic Europe mótinu í Madríd á Spáni en þar kepptu yfir 700 keppendur í ýmsum flokkum. Mótið er eitt stærsta mót sinnar tegundar en þær Hafdís Elsa Ásbergsdóttir og Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir komust þó báðar á verðlaunapall í sínum flokkum. Hafdís keppti í unglingaflokki í fitness og hafnaði þar í þriðja sæti sem er einn besti árangur sem íslenskur unglingur hefur náð á fitnessmóti fram til þessa. Aðalheiður gerði það sömuleiðis gott þegar hún hafnaði í sjötta sæti í undir yfir 168 sm flokki í módelfitness gegn mörgum sterkum keppendum víðsvegar að úr heiminum.

Íslendingarnir kepptu í ýmsum flokkum en úrslit þeirra urðu eftirfarandi:

Hafdís Elsa Ásbergsdóttir Junior Women Bodyfitness 3 sæti
Kristín Guðlaugsdóttir Women´s Bikini upto 163 9 sæti
Margrét Gnarr Jónsdottir Women´s Bikini upto 168 13 sæti
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir Women´s Bikini over 168 6 sæti
Magnea Gunnarsdóttir Women´s Bikini over 168 10 sæti
Margrét Lára Rögnvaldsdóttir Women´s Bikini over 168 12 sæti
Karen Lind Ríkarðsdóttir Women´s Bikini over 168 13 sæti
Elín Ósk Kragh Sigurjónsdóttir Women´s Bikini over 168 Ekki í úrslit
Alexandra Nikulásdóttir Bodyfitness over 168 Ekki í úrslit
Einhildur Ýr Gunnarsdóttir Bodyfitness over 168 Ekki í úrslit
Hugrún Árnadóttir Bodyfitness over 168 Ekki í úrslit
Magnús Bess Júlíusson Master Men 40-49 over 90 Ekki í úrslit

Enn sem komið er hafa ekki borist upplýsingar um sæti hjá Magnúsi, Hugrúnu, Einhildi og Alexöndru, en þau voru ekki í efstu sex sætunum. Þegar á heildina er litið mega íslendingarnir vel við una við þessi úrslit þar sem það má ekki gleymast að um er að ræða eitt af sterkustu mótunum sem haldin er í líkamsræktargeiranum.

Nokkrar myndir frá Eastlabs.biz: