Nú hafa um 162 keppendur skráð sig til keppni á Þrekmeistaramótinu sem haldið verður laugardaginn 30. apríl í Íþróttahöllinni á Akureyri. Á síðasta móti var þátttökumet slegið þegar 142 keppendur mættu til leiks en nú er ljóst að mikið þarf að gerast til þess að það met verði ekki slegið.Flestir þátttakendur eru að keppa í liðakeppninni en alls eru 18 kvennalið og 6 karlalið skráð í liðakeppnina en 24 konur og 18 karlar í einstaklingskeppnina. Óhætt er að segja að keppendur komi víða að þar sem þeir koma frá 16 sveitarfélögum víðsvegar um landið og alls 19 mismunandi æfingastöðvum. Keppnin hefst á laugardaginn kl 13.00 í íþróttahöllinni á Akureyri.


 Íslandsmet
2005
Karlar opinn flokkur16:56:84
Konur opinn flokkur19:24:07
Karlar eldri en 3919:35:00
Konur eldri en 3921:08:46
Liðakeppni opinn flokkur karlar14:18:49
Liðakeppni opinn flokkur konur16:40:27
Liðakeppni karlar eldri en 3916:16:78
Liðakeppni konur eldri en 3917.59.00


Smelltu hér til að fara í skráningar.

Smelltu hér til að skoða handbók Þrekmeistarans

Smelltu hér til að sækja PDF skjal með yfirliti keppnisgreina