25. nóvember. 2001

 

Á laugardagskvöld var haldið Bikarmeistaramót IFBB í fitness í Íþróttahúsinu í Keflavík. Í karlaflokki voru 29 mættir til keppni og níu í kvennaflokki. Sigurvegari í karlaflokki var Arnar Grant sem varði Bikarmeistaratitilinn frá síðasta ári og hlaut hann Hreystisbikarinn að launum. Arnar er jafnframt núverandi Íslandsmeistari eins og Freyja Sigurðardóttir sem sigraði í kvennaflokki enda líklega aldrei verið betri. Keppnin var mjög hörð, sérstaklega í karlaflokki þar sem margir sterkir keppendur tókust á um Hreystisbikarinn.Að þessu sinni var einnig keppt í einstökum greinum og í kvennaflokki var það Heiðrún Sigurðardóttir sem sigraði í danslotu, Freyja Sigurðardóttir sigraði í samanburði og Sara Ómarsdóttir var fljótust í hindranabrautinni. Í heildarkeppninni var það hinsvegar Freyja Sigurðardóttir sem hafði sigur.
Í karlaflokki sigraði Daníel Þórðarsson í upptogi og dýfum en hann gerði 24 upptog og 46 dýfur. Í hindranabraut var það Þorvaldur Borgar Hauksson sem var fljótastur og í samanburði sigraði Arnar Grant sem eins og áður sagði sigraði í heildarkeppninni.

Úrslit í karlaflokki

 

  1. Arnar Grant

  2. Guðni Freyr Sigurðsson

  3. Gunnar Benediktsson 

Úrslit í kvennaflokki

  1. Freyja Sigurðardóttir

  2. Heiðrún Sigurðardóttir

  3. Una Dóra Þorbjörnsdóttir