Bikarmot2015_GH42095Um helgina fór fram Bikarmót IFBB í fitness, vaxtarrækt og módelfitness. Um 90 keppendur kepptu á mótinu sem fór fram í Háskólabíói. Keppt var í sex keppnisgreinum og eftir niðurstöður í einstökum flokkum tókust sigurvegarar á um heildartitil hverrar keppnisgreinar. Í módelfitness var það Aníta Rós Aradóttir sem stóð uppi sem heildarsigurvegari eftir mjög jafna keppni við Aðalbjörgu Örnu G Smáradóttur sem eins og Aníta sigraði sinn flokk og Birnu Ósk Ólafsdóttur sem varð bikarmeistari unglinga. Jafntefli var á milli þeirra tveggja í heildarkeppninni en Aníta stóð uppi sem sigurvegari þegar jafnteflið var útkljáð. Heildarsigurvegari í fitnessflokkum kvenna varð Sandra Ásgrímsdóttir eftir keppni við þær Sif Garðarsdóttur og unglingnum Söru Mjöll Sigurðardóttur sem sigruðu einnig sína flokka. Sif Garðarsdóttir er áhugafólki um líkamsrækt vel kunn enda mætti hún nú til keppni eftir tíu ára hlé og stimplaði sig aftur inn með bikarmeistaratitli í sínum flokki.

Það var Rakel Svava Einarsdóttir sem sigraði í ólympíufitness kvenna en í fitnessflokkum karla var það unglingurinn Ingi Sveinn Birgisson sem sigraði heildarkeppnina gegn Sveini Má Ásgeirssyni sem hafði áður sigrað fitnessflokk karla. Í sportfitness karla voru það þeir Sindri Már Björnsson, Ásbjörn Árni Ásbjörnsson og Reynir Warner Lord sem kepptu um heildartitilinn eftir að hafa sigrað sína flokka. Sindri Már sigraði þá viðureign og stóð uppi sem heildarsigurvegari í sportfitness.

Einungis sex keppendur tóku þátt í vaxtarrækt að þessu sinni sem er söguleg lægð í þátttöku í vaxtarræktarflokkum. Það er ekki þar með sagt að vaxtarrækt sé að leggjast af sem keppnisgrein, heldur virðast fjölmargir keppendur vera að stefna á Íslandsmótið sem haldið verður um Páskana. Það var Gunnar Stefán Pétursson sem varð bikarmeistari unglinga í vaxtarrækt, en þeir David Nyombo Lukonge og Vilmar Valþórsson kepptu í sitthvorum flokknum, yfir og undir 90 kílóum. Í heildarkeppninni mættust þessir þrír herramenn á sviðinu. Vilmar Valþórsson sem keppni í sitt fyrsta skipti var um 102 kíló og sýndi fram á að hann gæti svo sannarlega átt framtíðina fyrir sér í þessari keppnisgrein. Það kom þó ekki í veg fyrir að David Nyombo Lukonge veitti honum ekki harða keppni því jafnt var á með þeim í stigum í heildarkeppninni. David mætti vel undirbúinn til keppni og dómarar voru tvístígandi með það hvor þessara ólíku keppenda yrði að lokum heildarsigurvegari. Fór svo að Vilmar stóð uppi sem bikarmeistari í vaxtarrækt.

Það var Gyða Henningsdóttir sem tók myndir fyrir fitness.is á mótinu en úrslit með stigagjöf fyrir einstakar lotur er að finna neðst í fréttinni  ásamt myndum frá mótinu. Fleiri myndir bætast við næsta sólarhringinn.

Myndir – módelfitness

Myndir – fitness kvenna

Myndir – fitness karla

Myndir – Vaxtarrækt

Myndir – Sportfitness

 

Bikarmot2015_GH40407_1

Sæti Fitness karla unglingafl.
Númer
1 Ingi Sveinn Birgisson 7
2 Hjálmar Gauti Jónsson 1
3 Teitur Arason 2
4 Jóhann Guðmundsson 3
5 Tadas Indriulis 6
6 Geir Ulrich Skaftason 5
Kristján Hjalti Sigurðsson 4

 

Bikarmot2015_GH49753

Sæti Fitness karla Númer
1 Sveinn Már Ásgeirsson 14
2 Þorvaldur Ægir Þorvaldsson 8
3 Elmar Eysteinsson 11
4 Helgi Sigurðsson 13
5 Stefán Reyr Sveinbjörnsson 10
6 Przemyslaw Zmarzly 12
Hlynur Icefit Jónsson 9

 

Bikarmot2015_GH40457

Sæti Fitness karla heildarkeppni Númer
1 Ingi Sveinn Birgirsson 7
2 Sveinn Már Ásgeirsson 14

 

Bikarmot2015_GH40529

Sæti Sportfitness unglinga Númer
1 Ásbjörn Árni Ásbjörnsson 23
2 Victor Levi 22
3 Valur Snær Hilmarsson 21
4 Björn Vestmar Bjarnason 15
5 Ingvar Þór Brynjarsson 20
6 Aron Björn Óðinsson 17
Ísak Grant 16
Úlfar Örn Úlfarsson 18
Kjartan Ingi Þórisson 19

 

Bikarmot2015_GH40597

Sæti Sportfitness karla undir 178 Númer
1 Sindri Már Björnsson 30
2 Ólafur Einir Birgisson 31
3 Róbert Þór Jónasson 26
4 Sigurður Kristján Nikulásson 24
5 Björn Berg Pálsson 25
6 Sigurður Heiðar Höskuldsson 28
Pétur Ingi Halldórsson 27
Etibar Gasanov Elísson 29

 

Bikarmot2015_GH40663

Sæti Sportfitness karla yfir 178 Númer
1 Reynir Warner Lord 34
2 Rúnar Jón Einarsson 35
3 Jhordan Valencia 32
4 Federico Chavarro Suarez 36
5 Stefán Pedro Cabrera 33

 

Bikarmot2015_GH40675_1

Sæti Sportfitness karla heildarkeppni Númer
1 Sindri Már Björnsson 30
2 Ásbjörn Árni Ásbjörnsson 23
3 Reynir Warner Lord 34

Bikarmot2015_GH40736_1

Sæti Vaxtarr.unglingafl. Karla (23 á árinu) Númer
1 Gunnar Stefán Pétursson 39
2 Kristján Þórður Þorvaldsson 37
3 Ethem Bajramaj 38
4 Brynjar Smári Guðmundsson 40

 

Bikarmot2015_GH40283_1

Sæti Vaxtarr.karlar að og með 90 kg Númer
David Nyombo Lukonge 41

 

Bikarmot2015_GH40313_1

Sæti Vaxtarr.karlar yfir 90 kg Númer
Vilmar Valþórsson 43

 

Bikarmot2015_GH40779

Sæti Vaxtarrækt heildarkeppni Númer
1 Vilmar Valþórsson 43
2 David Nyombo Lukonge 41
3 Gunnar Stefán Pétursson 39

 

Bikarmot2015_GH41606

Sæti Fitness kvenna ungl. (23 á árinu) Númer
1 Sara Mjöll Sigurðardóttir 44
2 Unnur María Guðmundsdóttir 45

 

Bikarmot2015_GH41766

Sæti Fitness kvenna Númer
1 Sandra Ásgrímsdóttir 47
2 Ingibjörg Magnúsdóttir 48
3 Linda Björk Rögnvaldsdóttir 50
4 Inga Hrönn Ásgeirsdóttir 46
5 Björg Thorberg Sigurðardóttir 51
6 Jóhanna Jóhannesdóttir 49

 

Bikarmot2015_GH41689

Sæti Fitness kvenna 35 ára + Númer
1 Sif Garðarsdóttir 53
2 Rósa Björg Guðlaugsdóttir 55
3 Sólveig Regína Biard 52
4 Alda Ósk Hauksdóttir 54

 

Bikarmot2015_GH41789

Sæti Fitness kvenna heildarkeppni Númer
1 Sandra Ásgrímsdóttir 47
2 Sif Garðarsdóttir 53
3 Sara Mjöll Sigurðardóttir 44

Bikarmot2015_GH41910

Sæti Módelfitness kvenna 35 ára+ Númer
1 Nadezda Nikita Rjanchuk 57
2 Tanja Alexandersdóttir 56

 

Bikarmot2015_GH41888

Sæti Módelfitness unglingar. Númer
1 Birna Ósk Ólafsdóttir 63
2 Bryndís Eva Heiðarsdóttir 60
3 Tanja Björt Halldórsdóttir 58
4 Perla Steingrímsdóttir 62
5 Hrafnhildur Arnardóttir 61
6 Finney Aníta Thelmudóttir 59

 

Bikarmot2015_GH42010

Sæti Módelfitness undir 168 Númer
1 Aðalbjörg Arna G Smáradóttir 66
2 Kristjana Huld Kristinsdóttir 70
3 Íris Arna Geirsdóttir 71
4 Aðalheiður Guðmundsdóttir 75
5 Jóhanna Friðriksdóttir 67
6 Simona Macijauskaite 68
Helga Magnea Gunnlaugsdóttir 69
Brennda Mattos 72
Sara Jóhannsdóttir 65
Arna Pétursdóttir 74
Una Sóley Pálsdóttir 73
Sandra Júlíana Karlsdóttir 64

 

Bikarmot2015_GH42081

Sæti Módelfitness yfir 168 Númer
1 Aníta Rós Aradóttir 78
2 Gyða Björk Ingimarsdóttir 82
3 Ana Markovic 87
4 Ingibjörg Garðarsdóttir Briem 81
5 Alexandra Rut Daníelsdóttir 88
6 Sara Björk Sigurðardóttir 84
Kristín Elísabet Gunnarsdóttir 77
Gréta Jóna Vignisdóttir 79
Ástrós Eir Sighvatsdóttir 80
María Sigurhansdóttir 85
Sunna Ýr Perry Bergsdóttir 86
Karen Kristinsdóttir 83

 

Bikarmot2015_GH42114

Sæti Módelfitness heildarkeppni Númer
1 Aníta Rós Aradóttir 78
2 Aðalbjörg Arna G Smáradóttir 66
3 Birna Ósk Ólafsdóttir 63
4 Nadezda Nikita Rjanchuk 57

Bikarmot2015_GH41818

Sæti Ólympíufitness kvenna Númer
Rakel Svava Einarsdóttir 89
Kalla Lóa Pizarro 90

 

Heildarúrslit með stigum fyrir einstakar lotur er hér að neðan.

Screen Shot 2015-11-22 at 15.45.19