Fitnessfréttir » Breytt aldursmörk í unglingaflokkum hjá IFBB
Breytt aldursmörk í unglingaflokkum hjá IFBB

Nýverið tilkynnti IFBB um breytt aldursmörk í unglingaflokkum í fitness og vaxtarrækt. Fram til þessa hafa aldursmörkin verið 21 árs á árinu í öllum fitness og vaxtarræktarflokkum. Þetta mark er hækkað hér með um tvö ár og unglingar mega í dag verða 23 ára á árinu sem keppt er og ekki yngri en 16 ára á árinu. Þessar nýju reglur eiga við um alla flokka nema módelfitness kvenna. Í módelfitness er unglingaflokkurinn 16-18 ára á árinu.

Haldin hafa verið svonefnd barna-heimsmeistaramót í fitness en þar verður aldursmarkið upp að 15 ára aldri á árinu sem keppt er.

Þessar breytingar taka strax gildi hér á landi og eflaust breytir þetta einhverju fyrir suma keppendur sem gerðu ráð fyrir að fara í fullorðinsflokk á árinu. Undirritaður hefur ekki rekist á rökstuðning fyrir þessum breytingum sem samþykktar voru á síðasta þingi IFBB. Gera má ráð fyrir að einn kosturinn við að hækka aldursmarkið verði sá að það verði ekki jafn stórt stökk fyrir suma keppendur að fara úr unglingaflokki í fullorðinsflokk. Margir unglingar hafa gert hlé á keppni þar sem þeir hafa viljað mæta samkeppnishæfari í fullorðinsflokki.

Skráningarnar á Íslandsmótið um Páskana hafa tekið tillit til þessarar breytingar.

Nýjustu greinarnar

Nýtt eintak Fitnessfrétta komið á vefinn

Annað tölublað Fitnessfrétta er komið á vefinn hér á fitness.is. Stórmyndarlegt blað eins og endranær, fullt af fræðandi efni um líkamsrækt, mataræði og heilsu. Að þessu sinni er Elva Katrín Bergþórsd...Lesa


Jóhann Norðfjörð dæmir í fyrsta skipti sem alþjóðlegur dómari

Það ríkir mikil gleði í loftinu meðal íslensku keppendana og fylgifiska þeirra á Evrópumóti Alþjóðasambands Líkamsræktarmanna  í fitness og vaxtarrækt sem fer fram um helgina í Santa Susanna á Spáni. ...Lesa


Kristín Kristjánsdóttir Evrópumeistari og Elva Katrín með silfur

Í dag eignuðust Íslendingar sinn fyrsta Evrópumeistara í fitness þegar Kristín Kristjánsdóttir sigraði í flokki 45 ára og eldri á Evrópumótinu í fitness sem fram fór í Santa Susanna á Spáni. Þetta er ...Lesa


Sögulegur sigur Magga Sam í vaxtarrækt

Magnús Samúelsson sigraði sinn flokk og heildarkeppnina í gær á alþjóðlega vaxtarræktarmótinu International Austrian Championships sem fór fram í gær í Austurríki. Kristín Kristjánsdóttir sigraði sömu...Lesa


Freyja Sigurðardóttir í öðru sæti á European Cup Amateur

Freyja Sigurðardóttir hafnaði í 2. sæti á European Cup Pro mótinu sem fór fram í dag í Madríd. Mótið er sérstakt að því leiti að sigurvegarar í öllum flokkum eiga kost á að fá atvinnumannakort. Frá þv...Lesa


Íslendingar keppa í Austurríki og á Spáni um helgina

Maggi Sam og Kristín Kristjánsdóttir keppa á International Austrian Championships um helgina. Maggi í vaxtarrækt og Kristín í bodyfitness. Freyja Sigurðardóttir keppir sömuleiðis á European Cup Amateu...Lesa


Magnús Samúelsson sigrar tvö vaxtarræktarmót í röð

Þau Magnús Samúelsson og Jóna Lovísa Jónsdóttir sigruðu bæði sína flokka á Oslo Grand Prix mótinu sem fór fram í Noregi um helgina. Jóna Lovísa keppti í klassískri vaxtarrækt og Magnús í undir 100 kg ...Lesa


Comments are closed.