Íslandsmótið í fitness fór fram í Háskólabíói á Skírdag þar sem rúmlega 40 keppendur stigu á svið. Mikil stemning var á mótinu þar sem margir bestu keppendur landsins voru mættir á svið en nokkuð færri keppendur tóku þátt að þessu sinni en undanfarin ár. Eftir því var tekið að styrkleiki keppenda var þess meiri í flestum flokkum. Fjölmargir keppendur eru þessa dagana að stefna á keppni á erlendum mótum. Sömuleiðis munu fjölmargir þeirra sem voru fjarverandi á Íslandsmótinu vera að horfa til þess að taka þátt á Bikarmótinu sem haldið verður 9. nóvember í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í tilefni 25 ára afmælis fitnessmóta hér á landi.

Nicole Abrahamsson

Sjá mátti marga efnilega byrjendur stíga sín fyrstu spor á sviði og fór svo að það var byrjandinn Nicole Abrahamsson stóð uppi sem heildarsigurvegari í módelfitness eftir jafna keppni í bæði byrjendaflokki og í undir 168 sm hæðarflokki.

Karen Lind Thompson

Sjá mátti þekkt andlit meðal keppenda, þar á meðal Karen Lind Thompson sem mætti aftur á svið eftir hlé frá keppni og stóð uppi sem sigurvegari í fitnessflokki kvenna.

Halldór Heiðberg Stefánsson sigurvegari í Sportfitness.

Í Sportfitness karla var það Halldór Heiðberg Stefánsson sem sigraði eftir harða keppni í mjög öflugum flokki þar sem allir keppendur voru mjög sterkir.

Gunnar Stefán og Sigurkarl voru vel sáttir báðir tveir eftir átökin. Á þeim félögum er 33 ára aldursmunur, Gunnar 27 ára og Sigurkarl 60 ára.

Gunnar Stefán Pétursson varð Íslandsmeistari í vaxtarrækt eftir harða og satt að segja óvænta keppni frá Sigurkarli Aðalsteinssyni sem óhætt er að segja að hafi mætt í sínu besta formi 60 ára að aldri. Stutt er síðan Sigurkarl hélt upp á sextugsafmælið sitt. Hann sýndi svo sannarlega að lengi er von á bætingum og hvers þessi íþrótt er megnug.

Ana Markovic fær afhenta bikara frá Kristjönu Huld Kristinsdóttur eftir að hafa verið valin Íþróttamaður ársins hjá IFBB á Íslandi. Annar bikarinn er farandbikar en hinn til eignar.

Ana Markovic var valin íþróttamaður ársins

Ana Markovic sigraði í bæði flokki 168 sm og hærri og 35 ára og eldri í módelfitness en þar að auki var hún valin Íþróttamaður ársins hjá IFBB. Ana hefur keppt á fjölda móta erlendis undanfarna mánuði. Hún tók þátt á 8 mótum á síðasta keppnistímabili, keppti í Serbíu, Póllandi, Ítalíu og tveimur mótum í Þýskalandi þar sem hún tók gull og silfurverðlaun. Hér heima á Íslandi sigraði hún bæði sinn hæðarflokk og varð heildarsigurvegari. Hún komst í úrslit í Rúmeníu á heimsbikarmóti og síðan í Kiev eða Kænugarði þar sem hún keppti einnig til úrslita meðal þeirra bestu í heiminum. Ana er frábær íþróttakona og verðugur handhafi þessa titils, ekki einungis vegna árangurs hennar í sportinu, heldur líka vegna einstakrar jákvæðni, gleði og hjálpsemi hvar sem hún kemur.

Úrslit Íslandsmótsins í fitness 2019

Sportfitness karla
3 Halldór Heiðberg Stefánsson 1
2 Torfi Hrafn Ólafsson 2
6 Mikael Brune 3
5 Sæmundur Freyr Erlendsson 4
4 Lukasz Milewski 5
1 Einar Bragi Jónsson 6
Vaxtarrækt karla
10 Gunnar Stefán Pétursson 1
7 Sigurkarl Adalsteinsson 2
8 David Nyombo Lukonge 3
9 Elmar Eysteinsson 4
Fitness kvenna
14 Karen Lind Thompson 1
12 Magnea Karlsdóttir 2
13 Katrín Jónasdóttir 3
Módelfitness byrjendur
18 Nicole Abrahamsson 1
19 Friðgerður Sunna Sigurðardóttir 2
20 Sæunn Ásgeirsdóttir 3
17 Melkorka Torfadóttir 4
16 Arna Lísa Ingimarsdóttir 5
15 María kristjánsdóttir 6
Ólympíufitness kvenna
21 Alda Ósk Hauksdóttir 1
Wellness flokkur kvenna
23 Giedré Grigaraviciuté 1
24 ingibjörg Marín Rúnarsdóttir 2
22 Hajar Anbari 3
Módelfitness unglinga
26 Tanja Rún Freysdóttir 1
25 María kristjansdóttir 2
Módelfitness -163
28 Arna Lísa Ingimarsdóttir 1
27 María Kristjánsdóttir 2
29 Dagmar Pálsdóttir 3
Módelfitness -168
33 Nicole Abrahamsson 1
30 Friðgerður Sunna Sigurðardóttir 2
32 Tanja Rún Freysdóttir 3
31 Vijona Salome 4
Módelfitness +168
36 Ana Markovic 1
35 Sæunn Ásgeirsdóttir 2
38 Melkorka Torfadóttir 3
39 Eva María Emilsdóttir 4
37 Helga Dóra Gunnarsdóttir 5
34 Ingibjörg Kristín Gestsdóttir 6
Módelfitness 35 ára +
41 Ana Markovic 1
42 Helga Dóra Gunnarsdóttir 2
40 Ingibjörg Kristín Gestsdóttir 3

Fjöldi mynda eru í myndasafninu. Myndirnar tók Gyða Henningsdóttir (www.gyda.is)