Framundan er stærsta Íslandsmót sem haldið hefur verið í fitness, módelfitness og vaxtarrækt. Mótið fer fram dagana 5. og 6. apríl í Háskólabíói. Á fimmtudeginum fer fram keppni í módelfitness en á föstudeginum fer fram keppni í fitness og vaxtarrækt. Undanfarin þrjú ár hefur stöðugur vöxtur verið í þátttöku á fitnessmótum IFBB þar sem þátttökumet hafa verið slegin á síðastliðnm fjórum mótum. Alls keppa 160 keppendur á Íslandsmótinu að þessu sinni og eru þar á meðal allir fremstu keppendur landsins. Að loknu Íslandsmótinu munu nokkrir keppendur stefna á mót erlendis, en fjöldi sterkra alþjóðlegra móta eru framundan.
Ætla má að mikil spenna verði í loftinu í úrslitum báða dagana, enda hafa keppendur staðið í ströngum undirbúningi fyrir mótið undanfarna mánuði. Það ætti því enginn að láta þennan stærsta viðburð líkamsræktargeirans á árinu framhjá sér fara.
Dagskráin á Íslandsmótinu er eftirfarandi.
Fimmtudagur 5. apríl
11.00 Forkeppni í Módelfitness
18.00 Úrslit í Módelfitness
Föstudagur 6. apríl
12.00 Forkeppni í fitness og vaxtarrækt
18.00 Úrslit í fitness og vaxtarrækt
Forsala miða fer fram í Hreysti í Skeifunni en einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn í Háskólabíói, þ.e.a.s. ef ekki verður uppselt.