Föstudaginn og laugardaginn 8. og 9. nóvember fer fram Bikarmót Alþjóðasambands líkamsræktarmanna, IFBB í Háskólabíói. Nú þegar hafa um 100 keppendur skráð sig til keppni og skráningar standa út vikuna. Það má því búast við skemmtilegum viðburði sem áhugafólk um líkamsrækt vill ekki missa af þessa helgi. IFBB heldur einungis tvö mót á ári hér á landi. Bikarmótið sem fer oftast fram í nóvember og Íslandsmótið sem fer alltaf fram um Páskana.
Dagskráin Bikarmótsins 2013
Föstudagur 8. nóvember
Kl. 19.00 Fitness og sportfitness karla og vaxtarrækt
Laugardagur 9. nóvember
Kl. 11.00 Forkeppni í módelfitness og fitness kvenna
Kl. 18.00 Úrslit í módelfitness og fitness kvenna
Forsala miða fer fram í Hreysti í Skeifunni og Átaki Skólastíg frá og með föstudeginum 1. nóvember.
Nákvæm dagskrá keppenda er hér.
—