Hollenskir vísindamenn undir stjórn Irene Kramer kynntu nýverið rannsókn sem sýndi fram á að prótínefnaskipti urðu eðlileg hjá öldruðum karlmönnum með vöðvarýrnun þegar þeir fengu prótínhristing með lefsínauðugu mysuprótíni. Vöðvarýrnun er aldurstengd og hefur í för með sér minni lífsgæði vegna minni vöðvastyrks, versnandi blóðsykurstjórnunar og hættu á að detta og beinbrotna. Mysuprótínið gerði það að verkum að nýmyndun vöðva hjá þeim öldruðu mældist sambærileg og hjá heilbrigðum karlmönnum.
EFTIR FERTUGT OG FRAM AÐ SEXTUGU GETUR VÖÐVAMASSI KARLMANNA RÝRNAÐ UM 20% EF EKKERT ER AÐ GERT.
Fjöldi fæðutegunda inniheldur mikið af prótíni og á þessum aldri er prótín sérlega mikilvægt til að viðhalda vöðvamassa. Öll prótín eru hinsvegar ekki sköpuð eins og þess vegna hefur mysuprótín oft komið við sögu þegar gerðar eru rannsóknir á þessu sviði vegna þess hversu auðvelt líkaminn á með að nýta það. Prótíndrykkur eða prótínrík máltíð er því mjög gagnleg gegn vöðvarýrnun og árangurinn verður enn meiri ef styrktarþjálfun fylgir með.
(Clinical Nutrition, vefútgáfa 29.9.16)






















