Sortuæxli er eitt af þeim húðkrabbameinum sem hafa reynst hættulegust. Líkurnar á að lifa í 10 ár án meðferðar eru nákvæmlega núll prósent.

Tíðni sortuæxla hefur stóraukist, sérstaklega meðal kvenna undir fimmtugu en talið er að ástæðuna megi rekja til ljósabekkjanotkunar.

DeAnn Lazovich við Háskólann í Minnesota hefur með rannsóknum sínum fundið tengsl á milli ljósabekkjanotkunar og sortuæxla í konum, en ekki karlmönnum.

Vísindamenn báru saman 681 sjúkling með sortuæxli við 654 jafnaldra sem ekki voru með sjúkdóminn. Notkun ljósabekkja jók líkurnar á að fá sortuæxli um 900% í samanburði við viðmiðunarhópinn.

Konur sem stunda ljósabekki oft og byrjuðu á unga aldri voru í mestri hættu á að fá sjúkdóminn. Talið er að sortuæxlafaraldurinn muni ekki dvína svo lengi sem ljósabekkir eru vinsælir.
(JAMA Dermatology, vefútáfa 27. janúar 2016)