Mikil kviðfita er stór áhættuþáttur fyrir efnaskiptaheilsu og heilbrigði hjartans.
Hægt er að fara í myndatöku í þeim tilgangi að meta hversu mikil kalkmyndun er í kransæðum hjartans. Þannig þarf ekki að fara í hjartaþræðingu eða skurðaðgerð til að meta ástand hjartans.
Kransæðarnar liggja utan á hjartanu og sjá því fyrir blóði.
Ef kalkmyndun er mikil er kransæðasjúkdómur til staðar sem eykur hættuna á hjartaáfalli, kransæðastíflu eða hjartabilun. Samkvæmt rannsókn sem gerð var við Ríkisháskólann í Sao Paulo í Brasilíu kom í ljós að hjá körlum með króníska nýrnasjúkdóma var samband á milli mikillar kviðfitu og mikillar kalkmyndunar í kransæðum. Mikil kviðfita er stór áhættuþáttur fyrir efnaskiptaheilsu og heilbrigði hjartans.
(European Journal Clinical Nutrition, 67: 610-614)





















