Óhófleg neysla orkudrykkja eins og Redbull geta valdið hjartsláttaróreglu, svefntruflunum, blóðþrýstingsvandamálum auk þess sem blóðsykurstjórnun fer norður og niður. Þetta fullyrða Læknasamtök Bandaríkjana. Athygli eftirlitsstofnana hefur í auknum mæli beinst að orkudrykkjum vegna koffíneitrunar sem fylgir of mikilli neyslu. Orkudrykkir eru á vissan hátt kaffi á sterum. Magn koffíns er gríðarlega mikið og því eru þessir drykkir taldir varasamir, sérstaklega í bland við áfengi. Ekki er ráðlegt að fólk drekki meira en 500 mg af koffíni á dag. Margir orkudrykkir innihalda rúmlega 200 mg af koffíni í dósinni. Þessir drykkir geta gagnast við að örva æfingar íþróttamanna, en einungis ef það er í hófi.
(Journal American Medical Association, vefútgáfa 19. desember, 2012)