Það að vera mjög duglegur við að mæta í æfingastöðina og taka á getur haft ofþjálfun í för með sér. Ofþjálfunin felur ekki einungis í sér að árangurinn láti á sér standa, heldur getur heilsunni hrakað.
Þegar ofþjálfun er annars vegar getur mótefnakerfi líkamans hrakað og haft í för með sér að líkaminn verður varnarlaus gagnvart flensum og pestum sem ganga. Það er því mikilvægt að kunna að hvíla sig á milli þess sem teknar eru góðar æfingar. Þarna á milli ríkir hárfínt jafnvægi sem hver og einn verður að læra á gagnvart sjálfum sér.
Ef þú ert búinn að æfa lengi og árangurinn stendur í stað er ekki ólíklegt að ofþreyta sé ástæðan. Þá er kominn tími til að breyta um æfingaáætlun og hvíla meira.
Æfðu vel, en af skynsemi.
(LATimes.com, 12. Nóvember 2001)


















