Reynsluboltar í æfingum kannast við að eiga misgóða daga í ræktinni. Þyngdir sem virðast léttar einn daginn virðast tonn þann næsta. Könnun sem Blair Crewther við Imperial College í London gerði bendir til að testósterón í munnvatni geti sagt fyrir um hámarks hnébeygjustyrk og getu í spretthlaupi. Þessi spádómsgáfa testósteróns í munnvatni á einungis við um reynslumikla lyftingamenn, ekki þá sem eru í lítilli æfingu.

Í raunveruleikanum sem tekur við þegar út úr rannsóknarstofunni er komið gætu þessar niðurstöður gagnast atvinnuíþóttamönnum sem hafa aðgang að mælitæki sem getur mælt testósterón í munnvatni og gert þeim þannig kleift að haga æfingunum þann daginn í takt við niðurstöður mælinganna. Þeir gætu tekið erfiða æfingadaga þegar mælingar eru háar en slakað á og hvílt eða tekið áreynsluminni æfingadaga þegar mælingarnar reynast lágar. Gallinn er sá að mælitækið sem hér um ræðir er frekar dýrt enn sem komið er og því ekki endilega á allra færi.

(Journal Strength Conditioning Research, 26: 261-268, 2012)