Þegar þú ætlar að ráða einkaþjálfara eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
Mun ég ná betri árangri með einkaþjálfara í stað þess að æfa einn/ein eða með æfingafélaga? Hversu lengi hef ég efni á að ráða einkaþjálfara? Mun ég geta haldið áfram að æfa þegar einkaþjálfarinn er ekki lengur til staðar. Hvað hefur einkaþjálfarinn fram að færa sem ég get ekki lært af bókum eða með því að spyrja æfingafélaga í ræktinni?
Helstu kostir einkaþjálfunar
- Frábær stuðningur, hvatning og leiðbeiningar. Hvatning og áhugi er lykilatriði þess að vilja mæta og æfa vel. Þessi kostur verður því seint ofmetinn.
- Þrýstingur og hvatning frá öðrum fær þig til að leggja þig meira fram.
- Einkaþjálfari býr yfir sérfræðikunnáttu og kennir þér rétta tækni í framkvæmd æfinga og æfingakerfa.
- Einkaþjálfari nýtir tímann vel og kennir þér að hætta að sóa tímanum í æfingasalnum.
- Einkaþjálfarar geta unnið í samstarfi við lækna eða sjúkraþjálfara sem er gagnlegt ef varast þarf ákveðna hluti vegna sjúkdóma, offitu eða verkja.
- Einkaþjálfari getur mælt með ákveðnu mataræði, kennt þér á fleiri en eitt æfingakerfi, mælt með fæðubótarefnum ef þarf og forðað þér frá ýmsum gildrum sem finna má í ræktinni.
Helstu gallar einkaþjálfunar
- Kostnaður er vissulega galli. Fyrir utan æfingagjöld sem greidd eru til æfingastöðvarinnar þarf að borga einkaþjálfaranum.
- Þú þarft að mæta á ákveðnum tímum þegar einkaþjálfarinn hefur tíma.
- Þú færð ekki endilega endurgreitt ef þú mætir ekki. Þetta getur líka verið kostur.
- Þú verður hugsanlega háð/ur einkaþjálfaranum og hættir að æfa þegar hann er ekki lengur til staðar.
Við hverju má búast frá einkaþjálfaranum?
- Markmiðasetning. Hann setur allt á blað og setur tímamörk á ákveðin markmið.
- Æfingakerfi. Einkaþjálfari hannar æfingakerfi sem hentar þér og leiðbeinir þér í æfingum sem eru heppilegar fyrir þig. Hann fylgist líka með árangri og kennir þér að ná tökum á æfingum og þjálfun á eigin vegum til lengri tíma litið.
- Rétt tækni. Einkaþjálfari kennir æfingarnar rétt sem forðar þér frekar frá meiðslum og hámarkar árangur.
- Mataræði. Ekkert æfingakerfi er svo gott að árangur þess sé ekki háður mataræðinu. Einkaþjálfari getur kennt þér ýmislegt um mataræðið.
- Agi og mæting. Einkaþjálfari setur þrýsting á að þú mætir reglulega.
- Hvatning. Einkaþjálfarar þekkja vel gildi hvatningar og það er hugsanlega það sem þig vantar til að mæta og ná árangir.
Óhæfir einkaþjálfarar
Einkaþjálfarar eru misjafnir. Engu líkara er en að annar hver maður í ræktinni hafi farið á námskeið eða í nám og kalli sig einkaþjálfara. Sumir eiga langt og gott nám að baki á meðan aðrir fóru á helgarnámskeið.
Nám og reynsla er umdeildur kokteill og hvorki nám né reynsla er eitt og sér uppskrift að góðum einkaþjálfara. Það er því vissara að velja einhvern sem er hæfur, hefur reynslu og fær meðmæli frá einhverjum sem þú þekkir og treystir. Sumir bjóða jafnvel upp á prufutíma.
Það er kostur ef einkaþjálfari hefur góða menntun í sínu fagi og sömuleiðis kostur ef viðkomandi hefur sýnt fram á mikla reynslu.
Fjarþjálfun
Hafa ber í huga að það eru ákveðin atriði sem ekki er hægt að kenna í gegnum síma eða tölvu í fjarkennslu. Fjarþjálfari getur ekki gert ákveðnar athuganir né prófað þig í þreki eða styrk. Fjarþjálfun hefur því verulegar takmarkanir. Hvatning og ákveðin öryggisatriði í sjálfum æfingunum eru ekki til staðar í fjarþjálfun með sama hætti og í einkaþjálfun. Fjarþjálfun getur því haft ákveðna kosti en hafa ber í huga þær takmarkanir sem henni fylgja.
Samantekt
Einkaþjálfarar eru frábær leið til að komast í form. Þeir leggja sig fram við að koma þér í form og sérhanna æfingakerfi fyrir þig ásamt því að gefa þér ráð varðandi mataræði. Hvatningin sem þeir veita til að mæta og leggja meira á sig er afar mikilvæg og líklega ein og sér það sem helst er borgandi fyrir.
Góður einkaþjálfari kemur þér líka upp og yfir brekkurnar í lífinu ef svo má segja. Allir eiga sér slæma daga og þá er einkaþjálfarinn góður félagi. Það er líklegt að margir nái frekar markmiðum sínum undir leiðsögn einkaþjálfara fremur en að eigin frumkvæði. Það er því mikilvægt að velja vel þegar leitað er að einkaþjálfara.