Til skamms tíma litið léttist fólk hraðar á hitaeininga- og kolvetnalágu mataræði en á hefðbundnu blönduðu hitaeiningalágu mataræði. Kolvetni eru mikilvægasti orkugjafinn þegar æfingaálag fer yfir 65% af hámarksátaki. Til lengri tíma litið dregur kolvetnalítið mataræði úr æfingagetu sem getur á endanum leitt til afturfarar í líkamsrækt og hreysti.

Samkvæmt niðurstöðum rannsókna á músum sem gerð var af Jessica Nilsson við Háskólann í Umeá í Svíþjóð reyndist hreinn vöðvamassi minnka og fituhlutfall hækka eftir einungis tveggja vikna lágkolvetnamataræði. Ennfremur reyndist hjartað hafa rýrnað eftir fjórar vikur.

Þessi rannsókn bætist við langan lista rannsókna sem sýna að heilbrigðast er að borða fjölbreytt fæði og að skortur á ákveðnum næringarefnum getur leitt til óheppilegra áhrifa á efnaskipti líkamans og þar af leiðandi heilsu.
(Nutrition & Metabolism, 13: 79, 16)