Heilinn notar mikla orku og þarf mikla orku til að starfa eðlilega. Hann notar fyrst og fremst glúkósa, öðru nafni sykur sem brennsluefni en getur líka notað ketóna og laktat. Lifrin framleiðir ketóna þegar lítið er af kolvetnum í mataræðinu eins og títt er um hitaeiningalítið mataræði. Ketónar myndast úr fitusýrum sem losna í niðurbroti fitu vegna hitaeiningalítils mataræðis eða þegar lítið er af kolvetnum í mataræðinu.

Flogaveikum er stundum ráðlagt að fra á ketógenískt mataræði vegna þess að talið er að það dragi úr tíðni flogakasta. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var af Patricia de Lima við vísinda- og tæknistofnun í Brasilíu hækkaði blóðfita óeðlilega mikið hjá flogaveikisjúklingum sem voru á ketógenísku mataræði. Hættan á hjartasjúkdómum jókst samhliða hækkandi blóðfitu.

Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að ketógenískt mataræði stuðlar að léttingu en getur líka valdið lifrarsjúkdóm sem kenndur er við feita lifur.
(Nutrition, 33: 271-277, 17)