skalliÞegar aldurinn færist yfir fer hárið að þynnast hjá öllum sama hversu hárprúðir þeir eru. Gallinn er sá að hárþynningin fer úr hófi fram hjá sumum. Hjá karlmönnum sem eru að fá skalla þynnist hárið aðallega efst á enninu en hárþynning sem er eðlileg þegar aldurinn segir til sín dreifist nokkuð jafnt yfir höfuðið. Ýmislegt getur valdið hárþynningu umfram það sem eðlilegt þykir sökum aldurs. Streita getur valdið tímabundinni hárþynningu en sama á við um hárlitun, hárblásara og efni sem notuð eru til að slétta hárið.

Ýmis lyf hafa verið framleidd til að sporna við hárþynningu en þeim fylgja önnur vandamál. Minoxidil getur stuðlað að hárvexti en aukaverkanir geta falist í minni testósterónframleiðslu og þar af leiðandi minni kyngetu og þunglyndi er sömuleiðis ein af hugsanlegum aukaverkunum. Spurningin er því hvort það sé ekki bara betra af tvennu illu að leyfa hárinu að þynnast. Hægt er að gera þunnt hár minna áberandi með hinni klassísku en kannski hallærislegu aðferð að greiða yfir. Hárígræðslur geta orðið að gagni fyrir suma en kannski er besta lausnin falin í því sem þykir töff þessa dagana – að hreinlega raka allt af og leyfa skallanum að njóta sín. Við skulum ekki gleyma því að mörg vandamál eru bara til inni í hausnum á okkur. Þetta er því ekki endilega spurning um að breyta um greiðslu, heldur hugarfar.
(Harvard Women´s Health Watch, september 2014)