Það hefur verið viðtekin skoðun meðal þeirra sem lyfta lóðum að hægar og vandaðar lyftur taki mest á vöðvaþræði. Sú er ekki endilega raunin samkvæmt niðurstöðum spænskrar rannsóknar sem gerð var á uppsetum fyrir kviðvöðva. Vöðvaátökin í kviðvöðvunum voru mæld í bæði hröðum og hægum uppsetum. Notast var við vöðvarafrita til að meta átökin framan á kviðvöðvunum og hliðarvöðvum.
Átökin voru mæld á fjórum mismunandi hröðum og allt frá einni lyftu sem tók fjórar sekúndur upp í hámarkshraða. Samkvæmt mælingunum jókst álagið eftir því sem hraðinn varð meiri.
Hraðar uppsetur skila því meiri árangri til vöðvauppbyggingar en hægar. Kúnstin er að gera þær ekki hraðar en svo að tæknin afbakist og valdi meiðslum.
(Journal Strength Conditioning Research, vefútgáfa)
