 Tímalengd lyftu hefur mest að segja um það hversu mikil nýmyndun vöðva verður eftir æfingar. Spenna ýtir undir flutning amínósýra inn í vöðva sem kemur af stað mTOR uppbyggingarferlinu sem nýmyndun vöðva felur í sér. Smávægilegir áverkar á vöðvafrumunni kalla á viðgerð og vaxtaraukningu. Brad Shoenfeld og félagar við Lehman skólann í New York gerðu safngreiningarrannsókn sem dró saman niðurstöður margra rannsókna sem snúa að vöðvauppbyggingu og ályktuðu þeir að ákjósanlegasta tímalengd einnar lyftu varaði frá 0,5 til 8 sekúndna. Ekki var hægt að sjá fram á umframaukningu í vöðvavexti þegar lyfturnar urðu 10 sekúndur eða lengri í samanburði við það að lyfta hraðar. Þeir félagar bentu á að þörf væri á frekari rannsóknum til að hægt væri að fullyrða um það hver kjörlengd lyftu væri.

(Sports Medicine, vefútgáfa 20. janúar 2015)