Könnun PricewaterhouseCoopers á líkamsræktariðkun

28% landsmanna stunda líkamsræktarstöðvar

  • 55% landsmanna stunda íþróttir eða líkamsrækt
  • 14% landsmanna stunda þolfimi
  • 34% landsmanna á aldrinum 15-29 ára á kort í æfingastöð
  • 18% landsmanna á aldrinum 50-75 ára á kort í æfingastöð
Rúmlega helmingur landsmanna stundar líkamsrækt reglulega en í þeim hópi sögðust 25,3% stunda þolfimi, 20,2% gönguferðir, 19,6% tækjaþjálfun, 16,6% sund og 11,0% fótbolta. Þegar fólk var spurt mátti það nefna þrjú atriði.

Konur eru heldur duglegri en karlarnir en 57,1% aðspurðra stundar líkamsrækt en 52,8% karla. Þessar niðurstöður staðfesta þá þróun sem verið hefur í gangi undanfarin ár þar sem líkamsræktarstöðvar hafa dafnað vel með aukinni aðsókn.

Hægt er að sjá nánari niðurstöður könnunarinnar í fréttatilkynningu frá PricewaterhouseCoopers