Ritstjórnarstefna fitness.is

Markmið fitness.is er að hvetja almenning til að stunda líkamsrækt, hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl. Lögð er áhersla á faglegar greinar byggðar á heimildum.

  • Árin 1999 til 2020 var prentútgáfa Fitnessfrétta gefin út í 8.000 eintökum fjórum sinnum á ári.
  • Í rúmlega tvo áratugi var blaðinu dreift frítt í allar æfingastöðvar landsins.
  • Svo kom Covid.
  • Í dag er blaðið í stafrænni útgáfu hér á fitness.is.
  • SÉRSTAÐA: Eina tímaritið á Íslandi um líkamsrækt og heilsu.

Við leggjum áherslu á traust lesenda

Fagleg heimildaöflun

Við leggjum áherslu á faglegar greinar sem byggjast á heimildum og vísum í þær eftir því sem við á.

Engar duldar auglýsingar

Við leyfum ekki duldar auglýsingar. Duldar auglýsingar eru því miður algengar í umfjöllun fjölmiðla og samfélagsmiðla.

Bann við reynslusögum

Við leyfum ekki umfjöllun um meintar heilsuvörur sem byggja tilvist sína einungis á reynslusögum eða vitnisburði notenda.

Gott og vont

Við fjöllum um bæði hið jákvæða og neikvæða við líkamsrækt, hreyfingu, fæðubótarefni, mataræði og heilbrigðan lífsstíl.

Fólkið

Fitnessfréttir og fitness.is

Gyða Henningsdóttir

Aðstoðarritstjóri

Gyða er með púlsinn á mannlífinu og hefur umsjón með viðtölum. Gyða er einnig náttúruljósmyndari (gyda.is), rithöfundur og vefstjóri 500.is.

Einar Guðmann

Ritstjóri

Einar Guðmann, hefur skrifað þúsundir greina fyrir fitness.is. Hann starfar sömuleiðis sem rithöfundur og náttúruljósmyndari (gudmann.is).