Ef þú vilt ná til líkamsræktarfólks eru Fitnessfréttir rétti miðillinn

Sérstaða prentaðrar útgáfu Fitnessfrétta á íslenskum auglýsingamarkaði liggur í því að það er eina tímaritið sem dreift er ókeypis í allar æfingastöðvar landsins og hefur því mjög afmarkaðan markhóp. Fyrir auglýsendur er stór kostur að vita með vissu inn á hvaða markhóp auglýsingar fara. Þessi staðreynd er líklega ein skýringin á því að flestir auglýsendur eru með langtíma auglýsingasamninga og ekki annað að sjá en að þeir séu ánægðir.

Helstu upplýsingar:
Dreifing: Dreift ókeypis í allar æfingastöðvar á landinu
Upplag: 10.000 eintök
Útgáfa: Fjögur tölublöð á ári.
Sérstaða: Eina tímaritið sem fjallar um líkamsrækt.

Netfang auglýsinga: fitness@fitness.is

Heimsóknum á fitness.is fer jafnt og þétt fjölgandi og er vefurinn því öflugur auglýsingamiðill Gefið er út fréttabréf sem sent er út u.þ.b. á tíu daga fresti og áskrifendur þess eru á fimmta þúsund og fer fjölgandi. Vinsælasti hluti vefsins er tvímælalaust myndasafnið sem telur nú á fimmta þúsund myndir og greinasafnið. Allt efni sem gefið er út í prentútgáfu blaðsins er einnig gefið út á vefnum auk fjölda annarra greina.

Útgefandi og ábyrgðarmaður Fitnessfrétta er Einar Guðmann