Site icon Fitness.is

Mikið prótín dregur úr andlegri streitu

Byrjendur ná framförum í flestum æfingakerfum vegna þess að eitthvað er betra en ekkert. Um leið og þjálfunin fer að skila sér skiptir fjöldi lota og endurtekninga miklu máli til þess að framfarir staðni ekki.

Til að ná meiri árangri þurfa íþróttamenn að fara eftir æfingakerfum sem skipt er niður í tímabil. Tímabil þar sem áhersla er lögð á uppbyggingu, þrek, þol, styrk, léttingu, þyngingu eða hvíld – allt eftir því hvert markmiðið er eða hvaða íþrótt á í hlut.

Álagið í þessum kerfisbundnu æfingum er vitanlega mis-mikið en að því kemur að verulega reynir á sálræna hlið þjálfunarinnar, sérstaklega á þeim tímabilum þegar æfingarnar eru erfiðastar.

Andleg þreyta og streita segir til sín og íþróttamenn eiga mis-gott með að takast á við andlega álagið sem fylgir þjálfuninni til lengri tíma. Stífar æfingar þýða að fyrr eða síðar þarf að hvíla huga og líkama til þess að jafna sig á álaginu.

Kevin Tipton og félagar við Birminghamháskólann í Bretlandi gerðu nýverið rannsókn sem ætlað var að kanna áhrif prótínneyslu á andlega streytu sem fylgir erfiðum æfingum. Kannað var hversu gott andlegt ástand íþróttamanna var á mismunandi æfingatímabilum. Hitaeininga- og kolvetnainnihald fæðunnar var hið sama yfir öll æfingatímabilin á meðan rannsókninni stóð en þegar íþróttamennirnir borðuðu mikið magn prótíns eða 3 g fyrir hvert kíló líkamsþyngdar, varð andleg streita minni en annars á þeim tímabilum þegar æfingarnar voru erfiðastar.

Það að borða 3 g fyrir hvert kíló líkamsþyngdar er óhemju mikið, jafnvel fyrir vaxtarræktarmenn. Ráðlagður dagsskammtur fyrir meðal-Jón er 0,8 g per kg en vitað er að þetta hlutfall má vera hærra ef um uppbyggingu er að ræða.

(Medicine Science Sports Exercise, 43: 598-607, 2011)

Exit mobile version