Site icon Fitness.is

Úrslit Bikarmóts IFBB 2015

Bikarmot2015_GH42095Um helgina fór fram Bikarmót IFBB í fitness, vaxtarrækt og módelfitness. Um 90 keppendur kepptu á mótinu sem fór fram í Háskólabíói. Keppt var í sex keppnisgreinum og eftir niðurstöður í einstökum flokkum tókust sigurvegarar á um heildartitil hverrar keppnisgreinar. Í módelfitness var það Aníta Rós Aradóttir sem stóð uppi sem heildarsigurvegari eftir mjög jafna keppni við Aðalbjörgu Örnu G Smáradóttur sem eins og Aníta sigraði sinn flokk og Birnu Ósk Ólafsdóttur sem varð bikarmeistari unglinga. Jafntefli var á milli þeirra tveggja í heildarkeppninni en Aníta stóð uppi sem sigurvegari þegar jafnteflið var útkljáð. Heildarsigurvegari í fitnessflokkum kvenna varð Sandra Ásgrímsdóttir eftir keppni við þær Sif Garðarsdóttur og unglingnum Söru Mjöll Sigurðardóttur sem sigruðu einnig sína flokka. Sif Garðarsdóttir er áhugafólki um líkamsrækt vel kunn enda mætti hún nú til keppni eftir tíu ára hlé og stimplaði sig aftur inn með bikarmeistaratitli í sínum flokki.

Það var Rakel Svava Einarsdóttir sem sigraði í ólympíufitness kvenna en í fitnessflokkum karla var það unglingurinn Ingi Sveinn Birgisson sem sigraði heildarkeppnina gegn Sveini Má Ásgeirssyni sem hafði áður sigrað fitnessflokk karla. Í sportfitness karla voru það þeir Sindri Már Björnsson, Ásbjörn Árni Ásbjörnsson og Reynir Warner Lord sem kepptu um heildartitilinn eftir að hafa sigrað sína flokka. Sindri Már sigraði þá viðureign og stóð uppi sem heildarsigurvegari í sportfitness.

Einungis sex keppendur tóku þátt í vaxtarrækt að þessu sinni sem er söguleg lægð í þátttöku í vaxtarræktarflokkum. Það er ekki þar með sagt að vaxtarrækt sé að leggjast af sem keppnisgrein, heldur virðast fjölmargir keppendur vera að stefna á Íslandsmótið sem haldið verður um Páskana. Það var Gunnar Stefán Pétursson sem varð bikarmeistari unglinga í vaxtarrækt, en þeir David Nyombo Lukonge og Vilmar Valþórsson kepptu í sitthvorum flokknum, yfir og undir 90 kílóum. Í heildarkeppninni mættust þessir þrír herramenn á sviðinu. Vilmar Valþórsson sem keppni í sitt fyrsta skipti var um 102 kíló og sýndi fram á að hann gæti svo sannarlega átt framtíðina fyrir sér í þessari keppnisgrein. Það kom þó ekki í veg fyrir að David Nyombo Lukonge veitti honum ekki harða keppni því jafnt var á með þeim í stigum í heildarkeppninni. David mætti vel undirbúinn til keppni og dómarar voru tvístígandi með það hvor þessara ólíku keppenda yrði að lokum heildarsigurvegari. Fór svo að Vilmar stóð uppi sem bikarmeistari í vaxtarrækt.

Það var Gyða Henningsdóttir sem tók myndir fyrir fitness.is á mótinu en úrslit með stigagjöf fyrir einstakar lotur er að finna neðst í fréttinni  ásamt myndum frá mótinu. Fleiri myndir bætast við næsta sólarhringinn.

Myndir – módelfitness

Myndir – fitness kvenna

Myndir – fitness karla

Myndir – Vaxtarrækt

Myndir – Sportfitness

 

SætiFitness karla unglingafl.
Númer
1Ingi Sveinn Birgisson7
2Hjálmar Gauti Jónsson1
3Teitur Arason2
4Jóhann Guðmundsson3
5Tadas Indriulis6
6Geir Ulrich Skaftason5
 Kristján Hjalti Sigurðsson4

 

SætiFitness karlaNúmer
1Sveinn Már Ásgeirsson14
2Þorvaldur Ægir Þorvaldsson8
3Elmar Eysteinsson11
4Helgi Sigurðsson13
5Stefán Reyr Sveinbjörnsson10
6Przemyslaw Zmarzly12
 Hlynur Icefit Jónsson9

 

SætiFitness karla heildarkeppniNúmer
1Ingi Sveinn Birgirsson7
2Sveinn Már Ásgeirsson14

 

SætiSportfitness unglingaNúmer
1Ásbjörn Árni Ásbjörnsson23
2Victor Levi22
3Valur Snær Hilmarsson21
4Björn Vestmar Bjarnason15
5Ingvar Þór Brynjarsson20
6Aron Björn Óðinsson17
 Ísak Grant16
 Úlfar Örn Úlfarsson18
 Kjartan Ingi Þórisson19

 

SætiSportfitness karla undir 178Númer
1Sindri Már Björnsson30
2Ólafur Einir Birgisson31
3Róbert Þór Jónasson26
4Sigurður Kristján Nikulásson24
5Björn Berg Pálsson25
6Sigurður Heiðar Höskuldsson28
 Pétur Ingi Halldórsson27
 Etibar Gasanov Elísson29

 

SætiSportfitness karla yfir 178Númer
1Reynir Warner Lord34
2Rúnar Jón Einarsson35
3Jhordan Valencia32
4Federico Chavarro Suarez36
5Stefán Pedro Cabrera33

 

SætiSportfitness karla heildarkeppniNúmer
1Sindri Már Björnsson30
2Ásbjörn Árni Ásbjörnsson23
3Reynir Warner Lord34

SætiVaxtarr.unglingafl. Karla (23 á árinu)Númer
1Gunnar Stefán Pétursson39
2Kristján Þórður Þorvaldsson37
3Ethem Bajramaj38
4Brynjar Smári Guðmundsson40

 

SætiVaxtarr.karlar að og með 90 kgNúmer
 David Nyombo Lukonge41

 

SætiVaxtarr.karlar yfir 90 kgNúmer
 Vilmar Valþórsson43

 

SætiVaxtarrækt heildarkeppniNúmer
1Vilmar Valþórsson43
2David Nyombo Lukonge41
3Gunnar Stefán Pétursson39

 

SætiFitness kvenna ungl. (23 á árinu)Númer
1Sara Mjöll Sigurðardóttir44
2Unnur María Guðmundsdóttir45

 

SætiFitness kvennaNúmer
1Sandra Ásgrímsdóttir47
2Ingibjörg Magnúsdóttir48
3Linda Björk Rögnvaldsdóttir50
4Inga Hrönn Ásgeirsdóttir46
5Björg Thorberg Sigurðardóttir51
6Jóhanna Jóhannesdóttir49

 

SætiFitness kvenna 35 ára +Númer
1Sif Garðarsdóttir53
2Rósa Björg Guðlaugsdóttir55
3Sólveig Regína Biard52
4Alda Ósk Hauksdóttir54

 

SætiFitness kvenna heildarkeppniNúmer
1Sandra Ásgrímsdóttir47
2Sif Garðarsdóttir53
3Sara Mjöll Sigurðardóttir44

SætiMódelfitness kvenna 35 ára+Númer
1Nadezda Nikita Rjanchuk57
2Tanja Alexandersdóttir56

 

SætiMódelfitness unglingar.Númer
1Birna Ósk Ólafsdóttir63
2Bryndís Eva Heiðarsdóttir60
3Tanja Björt Halldórsdóttir58
4Perla Steingrímsdóttir62
5Hrafnhildur Arnardóttir61
6Finney Aníta Thelmudóttir59

 

SætiMódelfitness undir 168Númer
1Aðalbjörg Arna G Smáradóttir66
2Kristjana Huld Kristinsdóttir70
3Íris Arna Geirsdóttir71
4Aðalheiður Guðmundsdóttir75
5Jóhanna Friðriksdóttir67
6Simona Macijauskaite68
 Helga Magnea Gunnlaugsdóttir69
 Brennda Mattos72
 Sara Jóhannsdóttir65
 Arna Pétursdóttir74
 Una Sóley Pálsdóttir73
 Sandra Júlíana Karlsdóttir64

 

SætiMódelfitness yfir 168Númer
1Aníta Rós Aradóttir78
2Gyða Björk Ingimarsdóttir82
3Ana Markovic87
4Ingibjörg Garðarsdóttir Briem81
5Alexandra Rut Daníelsdóttir88
6Sara Björk Sigurðardóttir84
 Kristín Elísabet Gunnarsdóttir77
 Gréta Jóna Vignisdóttir79
 Ástrós Eir Sighvatsdóttir80
 María Sigurhansdóttir85
 Sunna Ýr Perry Bergsdóttir86
 Karen Kristinsdóttir83

 

SætiMódelfitness heildarkeppniNúmer
1Aníta Rós Aradóttir78
2Aðalbjörg Arna G Smáradóttir66
3Birna Ósk Ólafsdóttir63
4Nadezda Nikita Rjanchuk57

SætiÓlympíufitness kvennaNúmer
 Rakel Svava Einarsdóttir89
 Kalla Lóa Pizarro90

 

Heildarúrslit með stigum fyrir einstakar lotur er hér að neðan.

 

 

 

 

Exit mobile version