Margrét Gnarr kom sá og sigraði á Evls Prague Pro atvinnumannamótinu í módelfitness sem fór fram fyrir skemmstu í Prag. Að hennar sögn var þetta fyrsta mótið sem hún keppti á og sigraði sem 100% vegan. Margrét er að vonum ánægð með útkomuna á forminu sem hún þakkar þjálfara sínum Imad og segist hafa borðað mun stærri máltíðir en vanalega til að geta mætt í „þéttara“ formi en vanalega.