Site icon Fitness.is

Engifer flýtir fyrir fitubrennslu

engiferlEngifer er heilsufæða sem vinnur gegn bólgum, dregur úr blóðþrýstingi, bætir blóðsykurstjórnun og örvar meltingarkerfið. Einnig er hugsanlegt að engifer flýti fyrir léttingu samkvæmt rannsókn sem vísindamenn í Egyptalandi gerðu á rottum. Þeir sýndu fram á að engifer stuðlaði jafn mikið að léttingu og orlistat lyfið (sem einnig er selt undir nöfnunum Xenical og Alli). Orlistat hindrar fitufrásog í þörmunum og er eitt af fáum lyfjum sem hafa verið samþykkt sem megrunarlyf. Ýmsar aukaverkanir fylgja því að taka orlistat, en engifer hafði engin óeðlileg áhrif á fituefnaskipti. Aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á að engifer eykur efnaskiptahraða og dregur úr hungurtilfinningu.

(European Review for Medical and Pharmacological Sciences, 17: 75-83, 2013)

Exit mobile version