Karlar í fyrsta skipti fleiri en konur síðan 2007
Vegna breytinga á samsetningu keppenda verður fyrirkomulag dagskrárinnar með svipuðu sniði og á Bikarmótunum þar sem karlar keppa fyrri daginn og konur seinni daginn. Með því er svipaður keppendafjöldi báða dagana. Er þar um að ræða breytingu á dagskránni sem rekja má til þess að hlutfallslega hefur körlum fjölgað miðað við konur og er þetta í fyrsta skipti síðan 2007 sem karlar eru fleiri en konur á Íslandsmótinu. Keppt verður í karlaflokkum á skírdag – fimmtudeginum og kvennaflokkum á föstudeginum langa.
Það stefnir í frábært mót og allir bestu keppendur landsins munu stíga á svið um páskana.
- Miðvikudagur 23. mars: Innritun keppenda – sjá dagskrá.
- Fimmtudagur 24. mars: Fitness karla, sportfitness og vaxtarrækt.
- Föstudagur 25. mars: Fitness kvenna, ólympíufitness og módelfitness.