Site icon Fitness.is

Rauðrófusafi bætir árangur langhlaupara

hlaupari

Æðarnar þurfa nítrat úr fæðutegundum eins og rauðrófum til að framleiða nituroxíð. Nituroxíð er nauðsynlegt fyrir eðlilegt blóðflæði og hefur því margvísleg áhrif á líkamann. Það er talið skipta máli fyrir gott kynlíf, orku og heilbrigði æðakerfisins. Konur sem tóku 140 ml af rauðrófusafa á dag í fjóra daga bættu hlaupahraða í 5 km hlaupi á hlaupabretti og slagþrýstingur minnkaði. Innþekjufrumurnar inni í æðaveggjunum seyta nituroxíði og geta þeirra til þess er mikilvægur mælikvarði á kransæðaheilsu og ástand þeirra. Heilbrigðar æðar seyta nituroxíði sem örvar blóðflæði til vefja um allan líkamann.
(British Journal of Sports Medicine, 47 (17): e4, 2013)

Exit mobile version