Site icon Fitness.is

Fitnesskeppendur í ófærð á Norðurlandi

Forkeppni Íslandsmótsins í fitness hefst í hádeginu í Íþróttahöllinni á Akureyri. Í kvöld klukkan 18.00 hefjast síðan úrslitin. Alls keppa 64 keppendur á Íslandsmótinu en nokkrir eru fastir í ófærð hér og þar um Norðurland. Vegir til Grenivíkur og Ólafsfjarðar eru lokaðir vegna ófærðar.Fari svo að keppendur komist ekki í forkeppnina sem hefst í hádeginu munu þeir engu að síður eiga þess kost að stíga á svið í kvöld. Vonandi rætist úr veðri og færð þegar líður á daginn en ófærðin eykur líklega spennu dagsins fyrir keppendur sem fyrir voru alveg nógu taugaspenntir. 

Exit mobile version