Íslandsmóti Alþjóðasambands líkamsræktarmanna sem fór fram í Háskólabíói lauk í gær. Þetta er í fyrsta skipti í 16 ár sem Íslandsmótið fer fram í Reykjavík en hefð hefur verið fyrir því að mótið sé haldið á Akureyri. Fjölmennt var í Háskólabíói bæði meðal áhorfenda og keppenda þar sem nákvæmlega 100 keppendur í ýmsum flokkum stigu á svið.

Rannveig Kramer varði Íslandsmeistaratitil sinn í fitnessflokki kvenna en hún sigraði sinn flokk og heildarkeppni kvenna í fitness. Kristján Geir Jóhannesson varð Íslandsmeistari í fitness karla og þau Magnús Bess Júlíusson og Jóna Lovísa Jónsdóttir urðu Íslandsmeistarar í vaxtarrækt.

Baráttan um efstu sætin í fitnessflokkum kvenna var óvenju hörð. Keppt er í tveimur hæðarflokkum, yfir og undir 163 sm.  Í lægri flokknum sigraði Guðrún Hólmfríður Ólafsdóttir sem var í hörkuformi, önnur varð Eva Lind Ómarsdóttir og þriðja Eva María Davíðsdóttir.  Í hærri flokknum sigraði Rannveig Kramer en önnur varð Freyja Sigurðardóttir og Björk Varðardóttir þriðja.
Sjö keppendur tókust á í unglingaflokki fitness kvenna. Una Margrét Heimisdóttir sigraði en önnur varð Dagný Pálsdóttir og þriðja varð Eva Rún Helgadóttir. Keppendur í unglingaflokki í fitness mega verða 21 árs á árinu sem keppnin fer fram. 
Það kom engum á óvart að Kristín Kristjánsdóttir sigraði fitnessflokk 35 ára og eldri. Fjórir keppendur kepptu að þessu sinni í flokknum en þær Ásdís Þorgilsdóttir og Steinunn Helgadóttir höfnuðu í öðru og þriðja sæti. Kristín var vel skorin á Evrópumælikvarða og það verður því forvitnilegt að sjá hvernig henni gengur um næstu helgi á stóru alþjóðlegu móti sem fer fram í Austurríki.
Það fór ekkert á milli mála í fitnessflokki karla að bestu keppendur landsins voru komnir saman á einn stað. Frjálsu stöðurnar við tónlist voru frábærar hjá mörgum þeirra og keppnin var hin skemmtilegasta í alla staði. Baráttan um efstu sætin var sömuleiðis sérlega erfið. Fljótlega varð þó ljóst að Kristján Geir stæði uppi sem sigurvegari. Hann var gríðarlega vel undirbúinn og hefur smátt og smátt verið að bæta samræmi og vöðvamassa á undanförnum mótum. Reynsluboltinn að norðan, Gauti Már Rúnarsson frá Ólafsfirði var að venju í frábæru formi og varð annar, en Jakob Már Jónharðsson veitti þeim tveimur harða keppni og hafnaði í þriðja sæti.

Í unglingaflokki tókust sex keppendur á. Alexander Kjartansson stóð uppi sem Íslandsmeistari unglinga en þeir Friðrik Ari Viðarsson og Arnór Már Jakobsson urðu í öðru og þriðja sæti. Arnór jafnaði þarna föður sinn Jakob Má Jónharðsson sem sömuleiðis varð í þriðja sæti í karlaflokki eins og áður sagði.

Sigurvegarar allra flokka mættust á sviðinu til þess að skera úr um það hver væri heildarsigurvegari í fitness kvenna. Það voru þær Rannveig Kramer sem sigraði í yfir 163 sm flokki, Guðrún Hólmfríður Ólafsdóttir sem sigraði í undir 163 sm flokki, Kristín Kristjánsdóttir sem sigraði yfir 35 ára flokkinn og Una Margrét Heimisdóttir sem sigraði unglingaflokkin.  Í heildarkeppninni raða dómarar öllum keppendum í sæti en einungis sigurvegarinn er tilkynntur. Fór svo að Rannveig Kramer sigraði.
Það þurfti ekki marga keppendur í vaxtarrækt til þess að gera keppnina spennandi. Alls kepptu sjö keppendur í vaxtarrækt karla og þrír í kvennaflokki. Magnús Bess Júlíusson sigraði þrátt fyrir að vera töluvert frá sínu besta formi hvað skurð varðar, en ekki vantaði massann og frábært samræmi. Þeir Svavar Smárason og Sigurkarl Aðalsteinsson voru hinsvegar vel undirbúnir og vel skornir – en nokkrum númerum minni. Bæði Sigurkarl og Svavar sýndu fram á miklar framfarir á milli ára.  Fór svo að Sigurkarl hafnaði í öðru sæti og Svavar í þriðja.

Þrír keppendur voru í unglingaflokki í vaxtarrækt. Það voru þeir Hallgrímur Þór Katrínarson, Bjarmi Alexander Rósmannsson og Saulius Genutis. Bjarmi stóð uppi sem Íslandsmeistari unglinga, en þeir Hallgrímur og Saulius í öðru og þriðja sæti.

Íslandsmótinu í módelfitness fór fram á fimmtudagskvöld. Fjöldi fólks var í húsinu og ætlaði þakið stundum af í fagnaðarlátum. Alls kepptu 47 keppendur í þremur flokkum, módelfitness unglinga, undir 167 sm og yfir 167 sm. Ragna Gréta Eiðsdóttir varð Íslandsmeistari unglinga en þær Elva Katrín Bergþórsdóttir og Unnur Kristín Óladóttir sigruðu hæðarflokkana. Í lokin tókust þær þrjár á í heildarkeppni og fór svo að Unnur Kristín sigraði sem heildarsigurvegari í módelfitness.

Dómarar áttu úr vöndu að ráða, enda var um fjölmenna flokka að ræða. Einungis munaði örfáum stigum á efstu keppendum en þetta varð niðurstaðan.

Ragna Gréta Eiðsdóttir sigraði unglingaflokkinn með nokkrum yfirburðum. Fékk 17 stig en Magnea Gunnarsdóttir fékk 43 stig og Aldís Rúna Þórisdóttir 48 stig.

Mjótt var á munum meðal efstu keppenda í undir 167 sm flokki þar sem 18 keppendur mættust. Elva Katrín sigraði með 31 stigi, en í öðru sæti kom Kristbjörg Jónasdóttir einungis tveimur stigum á eftir henni með 33 stig. Fast á hæla þeirra var Dóra Sveinsdóttir með 41 stig. Þau mistök gerðust því miður í þessum flokki að röng úrslit voru kynnt í verðlaunaafhendingu. Mistökin má rekja til villu í Excel forriti því sem notað var við útreikningana. Röð tilviljana varð síðan til þess að mistökin uppgötvuðust ekki fyrr en verðlaunaafhendingu var að ljúka, en búið er að fyrirbyggja að slíkt endurtaki sig og þeir sem eiga í hlut eru beðnir velvirðingar.

Alls kepptu 21 keppandi í yfir 167 sm flokki. Flokkurinn var gríðarlega sterkur og ljóst að baráttan um efstu sætin yrði hörð, enda fór svo að einungis munaði 6 stigum á efstu fjórum sætunum. Unnur Kristín Óladóttir sigraði með 54 stig, Vilborg Sigurþórsdóttir fékk 55 stig, Aðalheiður Ýr 59 stig og Alexandra fékk 60 stig.

Íslandsmót Háskólabíó 22. apr. 2011

Nafn keppanda
Fitness kvenna unglingafl. Sæti
49 Una Margrét Heimisdóttir 1
54 Dagný Pálsdóttir 2
48 Eva Rún Helgadóttir 3
50 Telma Rut Einarsdóttir 4
51 Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir 5
52 Andrea Rán Jóhannsdóttir 6
53 Tanía Björk Gísladóttir
Fitness kvenna 35 ára + Sæti
56 Kristín Kristjánsdóttir 1
58 Ásdís Þorgilsdóttir 2
55 Steinunn Helgadóttir 3
57 Berglind Guðmundsdóttir 4
Fitness kvenna -163 Sæti
63 Guðrún Hólmfríður Ólafsdóttir 1
60 Eva Lind Ómarsdóttir 2
59 Eva María Davíðsdóttir 3
64 Guðbjörg Hjartardóttir 4
61 Jóhanna Þórarinsdóttir 5
62 Edda Ósk Tómasdóttir 6
Fitness kvenna +163 Sæti
69 Rannveig Kramer 1
67 Freyja Sigurðardóttir 2
71 Björk Varðardóttir 3
70 Sif Sveinsdóttir 4
66 Einhildur Ýr Gunnarsdóttir 5
68 Magdalena Ksepko 6
65 Alla Runólfsdóttir
72 Selma Rut Sigurbjörnsdóttir
Vaxtarrækt karla, unglingar Sæti
74 Bjarmi Alexander Rósmannsson 1
73 Hallgrímur Þór Katrínarson 2
75 Saulius Genutis 3
Vaxtarrækt Sæti
78 Magnús Bess Júlíusson 1
77 Sigurkarl Aðalsteinsson 2
79 Svavar Smárason 3
80 Árni Freyr Árnason 4
Vaxtarrækt kvenna Sæti
81 Jóna Lovísa Jónsdóttir 1
82 Hilda Elisabeth Guttormsdottir 2

83 Ragnhildur Gyða Magnúsdóttir 3

Fitness karla unglingafl Sæti
85 Alexander Kjartansson 1
87 Friðrik Ari Viðarsson 2
89 Arnór Már Jakobsson 3
88 Guðmundur Andri Ólafsson 4
84 Benedikt Arnar Bollason 5
86 Sverrir Guðmundur Harðarson 6
Fitness karla
92 Kristján Geir Jóhannesson 1
95 Gauti Már Rúnarsson 2
94 Jakob Már Jónharðsson 3
96 Ingvar Birgir Jónsson 4
91 Hjörtur Einarsson 5
97 Jóhann Þór Friðgeirsson 6
90 Gísli Örn Reynisson
93 Gunnlaugur Víðir Guðmundsson
98 Benó Bragason
99 Lárus Kristinn Jónsson
100 Eiríkur Þórir Baldursson
Íslandsmótið í módelfitness 2011
Módelfitness kvenna, unglingafl Sæti
6 Ragna Gréta Eiðsdóttir 1
4 Magnea Gunnarsdóttir 2
2 Aldís Rúna Þórisdóttir 3
3 Bryndís Elva Bjarnsdóttir 4
8 Rakel Hlynsdóttir 5

1 Bergrún Lind Jónasdóttir 6

5 Þórey Aðalsteinsdóttir

7 Aðalheiður Maggý Pétursdóttir
Módelfitness kvenna, -167 sm Sæti
11 Elva Katrín Bergþórsdóttir 1
24 Kristbjörg Jónasdóttir 2
20 Dóra Sveinsdóttir 3
18 Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir 4
19 Arna Haraldsdóttir 5
23 Anna S. Halldórsdóttir 6
9 Auður Karlsdóttir
10 Bylgja Dögg Sigurðardóttir
12 Emilía Agnes Þorsteinsdóttir
13 Ása Dís Kristjánsdóttir
14 Kristín Ósk Jónsdóttir
15 Eva Kristín Kristbjörnsdóttir
16 Þórdís Stella Erlingsdóttir
17 Guðný Ósk Hilmarsdóttir
21 Hildur Björk Jónsdóttir
22 Hildur Markúsdóttir
25 Anna Þorsteinsdóttir
26 Rannveig Hrund Ólafsdóttir
Módelfitness kvenna, +167 sm Sæti
43 Unnur Kristín Óladóttir 1
27 Vilborg Sigurþórsdóttir 2
34 Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir 3

46 Alexandra Sif Nikulásdóttir4

31 Inga Björk Matthíasdóttir 5

42 Sonja Rut Alexandersdóttir 6
28 Kolbrún Tanja Eggertsdóttir
29 Heiða Berta Guðmundsdóttir
30 Telma Rut Tulinius
32 Verna Sigurðardóttir
33 Inga María Eyjólfsdóttir
35 Íris Edda Heimisdóttir
36 Kolbrún María Ingólfsdóttir
37 Dóra Sif Egilsdóttir
38 Katrín Edda Þorsteinsdóttir
39 Sara Vilhjálmsdóttir
40 Snædís Ragnarsdóttir
41 Eva Lind Höskuldsdóttir
44 Nadezda (Nika) Rjabchuk
45 Inga Lára Jónsdóttir

47 Valgerður Guðrún Valsdóttir

Sjá myndasafn…Video frá Alfreð Möller er að finna hér hjá Lifestyle Films