KarenLindArnolds2015Tæplega 1000 keppendur frá 67 löndum kepptu um helgina í einu fjölmennasta móti sem haldið hefur verið á vegum IFBB – Alþjóðasambands líkamsræktarmanna. Þrír keppendur tóku þátt fyrir Íslands hönd, þær Karen Lind Thompson, Kristín Elísabet Gunnarsdóttir og Sylvía Mekkín Narvaez. Allar kepptu þær í módelfitness. Veitt eru verðlaun fyrir sex efstu sætin í hverjum flokki og hafnaði Karen Lind í sjötta sæti í undir 172 cm flokki þar sem hún keppti við 28 aðra keppendur. Þær Sylvía Mekkín og Kristín Elísabet kepptu báðar í undir 169 cm flokki sem var skipaður 26 keppendum. Sylvía komst í úrslit 15 efstu en ekki Kristín Elísabet.

Aðspurð um þá upplifun að keppa á mótinu sagði Karen Lind: „Arnold Classic mótið er orðið svo ófyrirsjáanlegt. Maður þarf laglega að spýta í lófana því standardinn er orðinn miklu hærri en hann var fyrir einungis tveimur árum síðan. Ég er ánægð með sjötta sætið, sérstaklega eftir að hafa séð hvað við var að eiga. Það voru minnst 20 góðir keppendur í flokknum núna sem allir gátu átt tilkall til verðlaunasæta. Sú sem sigraði þennan flokk á síðasta ári komst ekki í úrslit 15 efstu núna. Hún varð í öðru sæti á Heimsmeistaramótinu en ekki í úrslitum núna. .“

Næst á dagskrá er Olympia Amateur Europe mótið sem fer fram í Prag um næstu helgi þar sem þær Karen og Sylvía munu stíga á svið.

SylviaMekkin_Arnolds2015b
Sylvía Mekkín Narvaez
SylviaMekkin_Arnolds2015
Sylvía Mekkín Narvaez
KristinElisabet_Arnolds2015b
Kristín Elísabet Gunnarsdóttir
KristinElisabet_Arnolds2015
Kristín Elísabet Gunnarsdóttir
KarenLindArnolds2015b
Karen Lind Thompson
KarenSylviaKristin
Karen, Sylvía og Kristín
KarenLindArnolds2015
Karen Lind Thompson