vigt23Nýjar rannsóknir varðandi þyngdarstjórnun hafa vakið margar spurningar meðal sérfræðinga og þvingað menn til þess að endurskoða það hvaða augum við lítum léttingu og áhrif hennar á heilbrigði. Nýlega var gefin út sérstök skýrsla um offitu og léttingu sem 21 sérfræðingur víða að úr heiminum átti aðild að undir stjórn Krista Casazza við Alabamaháskólann í Birmingham. Skýrslan dregur margar en mikilvægar ályktanir um það sem við höfum lært nýverið um þessi fræði.

  • Fólk þarf ekki að vera fangar erfðafræðinnar. Hægt er að breyta lífsstíl þannig að það hafi langvarandi áhrif á þyngdarstjórnun.
  • Strangir megrunarkúrar virka afar sjaldan til langs tíma.
  • Auknar æfingar auka heilbrigði óháð því hversu þungur viðkomandi er eða hversu mikið hann léttist.
  • Forvarnir gegn offitu eru ævilangt ferli.
  • Forvarnir gegn offitu barna verða að fela í sér aðkomu foreldra.
  • Sum lyf geta stuðlað að léttingu en ekki má hætta töku þeirra ef ætlunin er að viðhalda léttingunni.
  • Skurðaðgerðir á maga geta hjálpað þeim sem eru alvarlega offeitir til þess að léttast varanlega og draga þannig úr hættu gagnvart sykursýki og ótímabærum dauða.

(New England Journal of Medicine, 368: 446-454, 2013)