drugtest, steroids, sterar, toflur,Það fylgja ýmsar aukaverkanir því að taka anabolíska stera. Einn frekar hvimleiður fylgifiskur er að ævin styttist. Áhrif þess að gefa karlkyns músum stera voru rannsökuð með því að gefa þeim blöndu fjögurra anabolískra stera í sex mánuði.

Skammtarnir jafngiltu því sem sumir íþróttamenn og vaxtarræktarmenn taka

Sterarnir sem mýsnar fengu voru testosterone, testosterone cypionate í sprautuformi og methyltestosterone og norethandrolone sem hvorttveggja eru 17-alpha sterar í töfluformi. Sterarnir voru gefnir í 5 og 20 földu eðlilegu androgenmagni fyrir mýs. Ári eftir að hafa fengið sterana, þegar mýsnar voru 20 mánaða gamlar sem þykir nokkuð gamalt fyrir mýs voru 52% músanna sem fengu tuttugufaldann skammt af sterum dauðar, 35% þeirra sem fengu fimmfaldann skammt voru dauðar en einungis 12% þeirra sem fengu enga stera voru dauðar. Þegar mýsnar voru krufðar kom oftar en ekki í ljós að þær voru með lifrar- og nýrnaæxli, hjartaskemmdir og ýmsar aðrar skemmdir á innyflum. Niðurstaða vísindamannana var „að lífsskeið músa styttist verulega með því að gefa þeim í sex mánuði sambærilegan skammt af sterum og margir íþrótta- og vaxtarræktarmenn taka.„

(Bronson, F.H og Matherene, C.m. „Exposure to anabolic-androgenic steroids shortens life span of male mice.“ Medicine and Science in Sports and Exercise. 29:615-619, 1997).