PlakatBikarmot2013_1200pxÁ föstudag og laugardag fer fram Bikarmót IFBB, Alþjóðasambands líkamsræktarmanna í Háskólabíói. Mótið hefst klukkan 19.00 á föstudaginn með keppni í fitnessflokkum karla og vaxtarrækt. Á laugardaginn er haldin forkeppni um morguninn og um kvöldið fara fram úrslitin í módelfitness og fitnessflokkum kvenna. Forkeppnin á laugardag hefst klukkan 11.00 en úrslitin hefjast klukkan 18.00.

Stefnir í troðfullt Háskólabíó

Alls eru um 120 keppendur skráðir til keppni. Allir bestu keppendur landsins eru því að stíga á svið og má því búast við mikilli og spennandi keppni í Háskólabíói. Forsala miða er þegar hafin í Hreysti, Skeifunni og stefnir í troðfullt Háskólabíó enda er Bikarmótið annað af einungis tveimur mótum sem haldin eru á hverju ári. Þeir sem vilja vera öruggir um sæti ættu því að tryggja sér miða í forsölunni. Það er því sannkölluð líkamsræktarhelgi framundan sem enginn áhugamaður um líkamsrækt ætti að missa af.

Fjöldi fyrirtækja mun verða með vörukynningar í anddyri Háskólabíós á meðan mótið fer fram þar sem áhugafólki um líkamsrækt gefst kostur á að kynna sér það nýjasta í þessum geira.

Keppendalisti

Nákvæm dagskrá keppnisflokka