„Við höfum áhuga á að fjalla um áhrif mataræðis á langvinna lífsstílssjúkdóma og vekja athygli á niðurstöðum nýlegra rannsókna og kenninga á þessu sviði. Því ákváðum við að fá viðurkennda og þekkta fræði- og vísindamenn á þessu sviði til að tala á ráðstefnunni,“ segja læknarnir Axel F. Sigurðsson, Guðmundur Jóhannsson og Kjartan Hrafn Loftsson um ráðstefnuna „Foodloose: Processing The Science of Sugar, Fat And The Modern Diet” sem haldin verður í Hörpu 26. maí í vor.
„Við höfum áhuga á að fjalla um áhrif mataræðis á langvinna lífsstílssjúkdóma og vekja athygli
á niðurstöðum nýlegra rannsókna og kenninga á þessu sviði. Því ákváðum við að fá viðurkennda
og þekkta fræði- og vísindamenn á þessu sviði til að tala á ráðstefnunni,“ segja læknarnir Axel F.
Sigurðsson, Guðmundur Jóhannsson og Kjartan Hrafn Loftsson um ráðstefnuna „Foodloose:
Processing The Science of Sugar, Fat And The Modern Diet” sem haldin verður í Hörpu 26. maí í vor.

Haldin verður alþjóðleg ráðstefna um mataræði og lífsstílssjúkdóma í Hörpu 26. maí samkvæmt tilkynningu sem birt er í Læknablaðinu. Á meðal þeirra sem standa að ráðstefnunni eru þrír íslenskir læknar. Á ráðstefnunni, sem ber heitið Foodloose, munu heimsþekktir sérfræðingar nálgast þetta mikilvæga efni frá ýmsum sjónarhornum. Íslensku læknarnir eru Axel F. Sigurðsson hjartalæknir, Guðmundur Jóhannsson lyf- og bráðalæknir og Kjartan Hrafn Loftsson almennur læknir.

„Ástæðan fyrir því að við réðumst í þetta er sú að við erum að sjá sívaxandi bylgju krónískra sjúkdóma hér á Íslandi sem helst í hendur við þróunina í öðrum löndum. Ef svo fer sem horfir mun þetta að fáeinum áratugum liðnum gleypa stærstan hluta þeirra fjármuna sem settir eru heilbrigðiskerfið eins og við þekkjum það í dag. Þetta eru fjárfrekir sjúkdómar, lyfin eru dýr og meðhöndlunin tekur í rauninni aldrei enda, þar sem í flestum tilfellum er ekki um lækningu að ræða heldur stöðuga meðferð,“ segir Guðmundur og bætir því við að þrátt fyrir mikla og stöðuga samfélagsumræðu um hollt mataræði og alls kyns hreyfingu virðist þróunin halda áfram. Auk þess eru upplýsingarnar svo misvísandi að almenningur á í erfiðleikum að vita í hvorn fótinn hann á að stíga.

Málþingið Foodloose er opið öllum sem áhuga hafa þó sjónum sé fyrst og fremst beint að heilbrigðisstarfsfólki sem vill fræðast um efnið og hafa nýjustu upplýsingar á reiðum höndum þegar veita þarf skjólstæðingum ráðleggingar um hollt mataræði og heilbrigðan lífsstíl. Listinn yfir fyrirlesara er  glæsilegur en þeir eru Gary Taubes, Axel F. Sigurðsson, Tim Noakes, Tommy Wood, Denise Minger og Aseem Malhotra. Kynnir og fundarstjóri ráðstefnunnar er Dr. Maryanne Demasi, þekkt sjónvarpskona frá ABC sjónvarpsstöðinni í Ástralíu. Nánari upplýsingar um fyrirlesarana er að finna á heimasíðunni www.foodloose.is en þar geta áhugasamir jafnframt skráð sig á ráðstefnuna.