Íslandsmót IFBB í fitness Að venju verða haldin tvö innanlandsmót á árinu 2015. Íslandsmótið fer alltaf fram um Páskana og Bikarmótið seint að hausti. Í ár verður Íslandsmótið haldið fimmtudaginn og föstudaginn 2.-3. apríl og Bikarmótið verður haldið föstudaginn og laugardaginn 20.-21. nóvember. Bæði mótin verða haldin í Háskólabíói. Reiknað er með mikilli þátttöku á báðum mótunum enda hefur keppendafjöldi farið vaxandi á undanförnum árum. Skráning keppenda mun hefjast um tveimur mánuðum fyrir hvert mót en nú þegar er ljóst að fjöldi keppenda er að hefja undirbúning fyrir bæði mótin.

Íslandsmótið 2015

  • Miðvikudagur 1. apríl: Innritun keppenda.
  • Fimmtudagur 2. apríl: Fitness karla og kvenna, sportfitness og vaxtarrækt.
  • Föstudagur 3. apríl: Módelfitness.
  • Skráning á Íslandsmótið er hér.

Bikarmótið 2015

  • Fimmtudagur 19. nóvember: Innritun keppenda.
  • Föstudagur 20. nóvember: Fitnessflokkar karla, sportfitness og vaxtarrækt
  • Laugardagur 21. nóvember: Módelfitness og fitness kvenna

Birt með þeim fyrirvara að dagskrá getur breyst.