ForsidaFF1tbl2015_600pxNýjasta eintak Fitnessfrétta er komið út. Hlaðið af efni um mataræði, æfingar, heilsu, keppnir og hvaðeina sem líkamsræktarfólki kann að þykja áhugavert. Fjallað er um fjölda nýrra rannsókna enda hafa Fitnessfréttir oft skúbbað uppgötvunum og framförum á sviði líkamsræktar og næringar í gegnum tíðina. Að þessu sinni er fjallað um æfingakerfi sem þeim sem hafa áhuga á uppbyggingu kann að þykja áhugavert. Við berum saman æfingakerfi kraftlyftingamanna og vaxtarræktarmanna og komum víða við í hinum ýmsu rannsóknum sem varða bætiefni og æfingar.

Það færist í vöxt að blaðið sé lesið á vefnum og við minnum á að lítið mál er að lesa það líka í símum og spjaldtölvum. Sjálft blaðið fer næstu daga í dreifingu í æfingastöðvar um allt land.

Á forsíðunni er Aníta Rós Aradóttir sem sömuleiðis er í viðtali í blaðinu. Forsíðumyndina tók Brynjar Ágústsson sem jafnframt heldur úti vefnum www.portrett.is

Hægt er að fletta blaðinu hér að neðan.