plakatbikarmot2016_1600_72

Þessa dagana standa yfir skráningar á Bikarmót Alþjóðasambands líkamsræktarmanna sem verður haldið laugardaginn 19. nóvember í Háskólabíói. Um er að ræða annað af þeim tveimur fitnessmótum sem haldin eru hér á landi á hverju ári. Margir af bestu keppendum landsins eru að undirbúa sig fyrir mótið og má búast við hörkumóti. Við munum kynna nákvæma dagskrá þegar nær dregur en innritun keppenda mun fara fram á föstudegnum en á laugardeginum fer forkeppni fram klukkan 10:00 og úrslit klukkan 16:00. Dagskráin verður með svolítið breyttu sniði frá því á síðasta ári þar sem nú verður keppt á einum degi, ekki tveimur. Dagskránni verður hinsvegar skipt upp til hagræðis fyrir keppendur og áhorfendur.  Áhugafólk um líkamsrækt ætti ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara.

Skráning keppenda er hér.

Dagskrá keppenda er hér

screen-shot-2016-11-16-at-21-06-26

Ath að dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.